Fixum sinnir smíði, uppsetningum, viðgerðum og tengdum verkefnum samkvæmt samkomulagi við viðskiptavin.
Allar verðtilboð og áætlanir miðast við þær upplýsingar sem liggja fyrir við tilboðsgerð. Breytingar á umfangi, efnum eða aðstæðum geta haft áhrif á verð og verklok.
Ef ekki er um fast verð að ræða er unnið samkvæmt tímagjaldi Fixum auk efniskostnaðar og hugsanlegs verkfæragjalds.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að aðgangur að vinnusvæði sé tryggður á umsömdum tíma.
Fixum ber ekki ábyrgð á töfum sem stafa af aðstæðum utan okkar stjórnunar (t.d. afhendingartöfum efna, veðri, falnum göllum, öðrum verktökum).
Greiðslufrestur reikninga er samkvæmt samkomulagi, nema annað sé tekið fram.
Uppsetning miðast við að innréttingar séu rétt framleiddar, heilar og samkvæmt teikningum framleiðanda.
Fixum ber ekki ábyrgð á framleiðslugöllum, skekkjum í innréttingum eða rangri hönnun sem viðskiptavinur eða þriðji aðili ber ábyrgð á.
Veggir, gólf og loft skulu vera í ásættanlegu ástandi. Skekkja eða ójafnvægi getur kallað á viðbótarvinnu.
Allar breytingar eða lagfæringar utan hefðbundinnar uppsetningar eru unnar gegn aukagjaldi.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á vali parkets nema annað sé sérstaklega samið.
Undirlag skal vera þurrt, slétt og í samræmi við kröfur framleiðanda. Ef undirlag uppfyllir ekki skilyrði getur þurft viðbótarundirbúning.
Fixum ber ekki ábyrgð á hreyfingum, sprungum eða skemmdum sem rekja má til raka, hitabreytinga eða byggingargalla.
Gera skal ráð fyrir eðlilegum þenslubilum samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Sérsmíði er unnin samkvæmt samþykktum teikningum, mælingum og efnisvali.
Þar sem um handverk er að ræða má búast við eðlilegum frávikum í viðaráferð, lit og áferð.
Breytingar eftir að vinna hefst geta haft áhrif á verð og afhendingartíma.
Sérsmíðaðar vörur eru almennt ekki endurgreiðanlegar nema um verulegan galla sé að ræða.
Viðgerðir miða að því að bæta virkni og ástand, en tryggja ekki endilega að eldri lausnir verði eins og nýjar.
Í eldri mannvirkjum geta komið í ljós falnir gallar sem kalla á viðbótarvinnu.
Fixum ber ekki ábyrgð á eldri kerfum eða efnum sem bila síðar utan viðgerðarinnar.
Uppsetning miðast við að vörur séu rétt framleiddar og í samræmi við op og aðstæður.
Fixum ber ekki ábyrgð á framleiðslugöllum hurða eða glugga.
Eldri húsnæði geta haft skekkjur sem gera fullkomna stillingu ómögulega án viðbótarvinnu.
Einangrun, þéttingar og frágangur eru framkvæmd samkvæmt faglegum viðmiðum hverju sinni.
Önnur smíði er unnin samkvæmt samkomulagi hverju sinni.
Ef verk er ekki nánar skilgreint í tilboði eða samningi telst það aukavinna.
Fixum áskilur sér rétt til að aðlaga lausnir að aðstæðum á staðnum, í samráði við viðskiptavin.